Pantanir:
Við hjá Palóma tökum við pöntunum þegar greiðsla hefur borist. Þegar greiðsla berst er kaupanda send staðfesting í tölvupósti.
Greiðsla:
Hægt er að greiða pantanir með kreditkorti, íslensku debetkorti, netgíró eða millifærslu. Kortafærslur fara í gegnum örugga greiðslusíðu Valitor, því fær Palóma aldrei kortaupplýsingar kaupanda.
Sendingarmáti:
Pantanir okkar er hægt að fá senda með pósti eða sækja þær í verslun á opnunartíma eða eftir samkomulagi. Sendingarkostnaður er 990 kr.
Pantanir eru sendar með Íslandspósti, en það tekur allt að 1 virkan dag að afgreiða pöntunina. Sendingartími er 1-4 virkir dagar.
Hjá okkur gilda afhendingar-,ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vöru. Ef valið er að sækja pöntunina til okkar á Víkurbraut 62,240 Grindavík þá gildir opnunartími verslunarinnar eða eftir samkomulagi.
Vöruskil:
Skilafrestur er 14 dagar frá kaupum. Vöru fæst aðeins skilað sé hún ónotuð og í upprunalegu ástandi. Tilkynna skal vöruskil á paloma@paloma.is eða í síma: 426-8711. Boðið er upp á inneignarnótu eða vöruskipti ekki endurgreiðslu. Athugið þegar vöru er skilað ber kaupandi ábyrgð á vörunni þar til hún hefur borist okkur. Kaupandi greiðir sendingarkostnað sé vöru skilað. Sé vara endursend verður hún að berast á heimilisfang Palóma föt og skart ehf.
Hafi viðskiptavinur fengið skemmda eða ranga vöru, ber honum að upplýsa okkur um það við fyrsta tækifæri og munum við taka fulla ábyrgð á því.
Lagersala:
Vörum á lagersölu fæst hvorki skipt né skilað.
Fyrirvari:
Palóma föt og skart áskilar sér rétt til verðbreytinga án fyrirvara. Allar upplýsingar og verð eru birt með fyrirvara um innsláttarvillu og myndbrengl. Palóma föt og skart áskilur sér rétt til að hætta við pöntun komi í ljós að varan sé vitlaust verðmerkt eða uppseld. Í þeim tilfellum er viðskiptavini endurgreitt.
Trúnaður:
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum, nema svo beri skylda gagnvart lögum.
Lög og varnarþing:
Varðandi viðskipti við okkur, sem og önnur atriði í samningsskilmálum þessum gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur milli Palóma föt og skart ehf og viðskiptavinar skal mál vegna þess rekið fyrir íslenskum dómstólum.